Grunsamlegur maður á ferð eystra

Maðurinn var að banka á dyr í Neskaupstað. Mynd úr …
Maðurinn var að banka á dyr í Neskaupstað. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglunni á Austurlandi barst fyrir skömmu tilkynning um grunsamlegan aðila, sem var að banka á dyr í Neskaupstað. Lögregla segir í tilkynningu á Facebook-síðu sinni að allt atferli mannsins sé mjög í samræmi við aðila sem hafi farið inn í hús víðs vegar á landinu og stolið verðmætum.

Lögregla biðlar til íbúa á svæðinu að hafa augun hjá sér og láta lögreglu strax vita ef vart verður við grunsamlegar mannaferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert