Jón Karl kjörinn formaður Varðar

Jón Karl Ólafsson.
Jón Karl Ólafsson. mbl.is/Brynjar Gauti

Jón Karl Ólafsson var í gærkvöldi kjörinn formaður Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á aðalfundi fulltrúaráðsins.

Fráfarandi formaður, Gísli Kr. Björnsson, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var í lok fundar þakkað fyrir vel unnin störf.

Auk Jón Karls voru þau Pétur Andri Pétursson Dam, Ragnhildur Alda M. Vilhjálmsdóttir, Einar Hjálmar Jónsson, Einar Sigurðsson, Elín Engilbertsdóttir, Gunnar Páll Pálsson og Matthildur Skúladóttir kjörin í stjórn Varðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert