Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var barst tilkynning um hávaða frá íbúð við Hringbraut á öðrum tímanum í nótt.
Eigandi íbúðarinnar reyndist ekki í íbúðinni þegar lögregla kom á staðinn, en fannst í mjög annarlegu ástandi í sameign í kjallaranum.
Maðurinn var handtekinn og við öryggisleit fundust hjá honum efni sem talin eru vera fíkniefni. Hann fékk síðan að gista í fangageymslu lögreglu í nótt sökum annarlegs ástands.
Þá barst tilkynning um innbrot í bíl við Sóleyjargötuna undir miðnætti, en búið var að stela úr bílnum ferðatöskum og farangri erlendra ferðamanna.