„Röð af klaufaskap og mistökum“

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fyrirtækið muni halda …
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fyrirtækið muni halda áfram að hlúa að íslensku heilbrigðiskerfi, þrátt fyrir seinagang við uppsetningu jáeindaskannans á Landspítala. mbl.is/Golli

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðargreiningar, segir ferlið frá því að skóflu­stunga að bygg­ing­unni sem hýs­ir já­eindaskann­ann við Landspítala var tek­in í janú­ar árið 2016 og þar til hann var tekinn í notkun í síðustu viku vera röð af klaufaskap og mistökum.

Fyrstu áætlan­ir gerðu ráð fyr­ir því að taka mætti tækið í notk­un um miðjan sept­em­ber árið 2016, en þær stóðust ekki, né held­ur áætlan­ir sem gerðu ráð fyr­ir því að skann­inn yrði tek­inn í notk­un síðasta haust og janú­ar­mánuði síðastliðnum. Í apríl framkvæmdi Lyfja­stofn­un út­tekt á geisla­virku lyfi, sem gefa þarf  þeim sjúk­ling­um sem fara í já­eindaskann­ann. Hann var hins vegar ekki formlega tekinn í notkun fyrr en í síðustu viku.

Ekki nóg að dæla peningum í heilbrigðiskerfið

Pétur H. Hannesson, yfirlæknir á röntgendeild Landspítala, sagði í samtali við mbl.is í gær það hafi ef til vill verið óskhyggja að klára verkið á rúmu ári. Kári fullyrðir að ef Íslensk erfðagreining hefði byggt jáeindaskanna í Vatnsmýri hefði það tekið eitt ár, en ekki tæp þrjú. Já­eindaskann­inn var að stærst­um hluta gjöf til spít­al­ans, eða öllu held­ur þjóðar­inn­ar, frá Íslenskri erfðagrein­ingu og kost­ar í heild­ina rúm­an millj­arð króna.

„Þetta er ósköp einfaldlega þvaður,“ segir Kári um orð Péturs og bendir hann á að þrjú ár séu langur tími þegar litið er til jafn stórra tækja og jáeindaskannans. „Svona tæki hefur takmarkaðan endingartíma og allt í einu er það orðið þriggja ára gamalt þegar það er tekið í notkun,“ segir Kári.

Hann segir að ferlið sýni að það er ekki nóg að dæla peningum í íslenska heilbrigðiskerfið heldur þurfi að fylgja því vel eftir, sem hafi ekki verið gert í tilviki jáeindaskannans.

Engir eftirmálar verða hins vegar vegna málsins að sögn Kára. „Við munum halda áfram að hlúa að íslensku heilbrigðiskerfi. Það truflar mig í sjálfu sér ekkert að það hafi átti sér röð af mistökum. Nú vonast ég til þess að þetta gagnist spítalanum og íslenskum sjúklingum,“ segir Kári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert