„Ísland á að geta gert betur“

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra (t.h.), átti í dag …
Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra (t.h.), átti í dag fund með Kimmo Tiilikainen, ráðherra húsnæðismála í Finnlandi. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, er nú staddur í Finnlandi þar sem hann ræðir meðal annars við þarlend stjórnvöld um aukið samstarf í húsnæðismálum. Ásmundur átti í dag fund með Kimmo Tiilikainen, ráðherra húsnæðismála í Finnlandi. Ásmundur segir Ísland sem samfélag eiga að geta gert betur í húsnæðismálum

Finnar hafa þótt ná góðum árangri á sviði húsnæðismála þar sem markaðurinn hefur meðal annars einkennst af stöðugleika og byrði lágtekjuhópa vegna húsnæðiskostnaðar hefur verið lægri en annars staðar á Norðurlöndunum, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. 

Ásmundur Einar fagnar auknu samstarfi og segir Íslendinga geta læra margt af Finnum í húsnæðismálum.

Þurfum að hugsa í stærri lausnum

„Félagslegar áherslur finnskra stjórnvalda með miklu samstarfi ríkis, sveitarfélaga og opinberra stofnana hafa skilað árangri. Jafnframt hafa finnsk stjórnvöld með beinum hætti lagt áherslu á uppbygginu hagkvæms húsnæðis án hagnaðarsjónarmiða. Ísland sem samfélag á að geta gert betur í húsnæðismálum en til þess þurfum við að hugsa í stærri lausnum og samstarf við Finna mun skipta miklu máli í því sambandi,“ er haft eftir ráðherra í tilkynningunni.

Þá segir, að húsnæðisstefna finnskra stjórnvalda einkennist af öflugu samstarfi ríkis, sveitarfélaga og opinberra stofnana. Húsnæðisstofnunin ARA, sem sé systurstofnun Íbúðalánasjóðs í Finnlandi, styðji við uppbyggingu félagslegs húsnæðis með styrkjum, vaxtaniðurgreiðslum og ábyrgðum. Stofnunin hafi aðkomu að um 20% allra íbúða sem byggðar eru í Finnlandi og sé m.a. aðili að samkomulagi ríkis og sveitarfélaga á Helsinki-svæðinu um uppbyggingu 60.000 íbúða árin 2016-2019.

Getur stuðlað að framboði fyrir alla hópa og stöðugleika á húsnæðismarkaði

Í fjármálakreppunni var aðkoma ARA að húsnæðisuppbyggingu stóraukin og þannig var stuðlað að auknum stöðugleika á byggingamarkaði á meðan kreppan gekk yfir. Sú reynsla sýnir hvernig öflug opinber húsnæðisstofnun getur ekki aðeins stuðlað að nægilegu framboði af húsnæði fyrir alla félagshópa heldur einnig stöðugleika á húsnæðismarkaði, að því er ráðuneytið greinir frá.

Fram kemur, að ríkisrekna leigufélagið A-Kruunu hafi verið stofnað árið 2013 og sé til marks um áhrifaríka og heildstæða nálgun finnskra stjórnvalda í húsnæðismálum. Félagið sé ekki rekið í hagnaðarskyni og leggi áherslu á nýbyggingu hagkvæms íbúðarhúsnæðis. Við val á leigutökum sé forgangsraðað eftir félagslegum þörfum, eignum og tekjum og þannig styðji félagið við uppbyggingu heilbrigðs leigumarkaðs fyrir alla samfélagshópa.

A-Kruunu hefur þá stefnu að byggja 400 leiguíbúðir á Helsinki-svæðinu á ári hverju og við val á byggingarsvæðum er meðal annars horft til áhrifa á atvinnumyndun á svæðinu. Allar íbúðir félagsins eru staðsettar nærri þjónustu og samgöngum og spurnin eftir íbúðunum hefur verið mikil enda er leigan hagkvæm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert