Í dag spáir Veðurstofan vestan og síðar suðvestan 8-13 m/s, en hægari vindi vestanlands. Víða verða dálitlar skúrir en léttir til á Austurlandi. Hiti verður 1 til 9 stig, mildast suðaustanlands.
Þá er spáð sunnangolu eða -kalda á morgun. Þurrt og bjart veður verður á Norður- og Norðausturlandi en skúrir í öðrum landshlutum. Hiti 3 til 8 stig.
Veðurútlit er svipað á mánudag en á þriðjudag er búist við rigningu eða slyddu um mestallt land.
Veðurhorfur næstu daga:
Á sunnudag og mánudag:
Sunnan 3-8 og stöku skúrir, en þurrt og bjart veður norðanlands. Hiti 1 til 7 stig að deginum.
Á þriðjudag:
Norðaustan 8-15 og rigning eða slydda, en úrkomulítið vestanlands. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig. Norðvestlægari um kvöldið og rofar til sunnan heiða.
Á miðvikudag:
Vestlæg átt og skúrir eða él, en léttskýjað austanlands. Hiti 0 til 5 stig.
Á fimmtudag:
Sunnanátt og rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 3 til 10 stig.
Á föstudag:
Vestlæg átt og stöku skúrir eða él, en bjartviðri austanlands. Kólnandi veður.