Fresturinn lengdur um eitt ár

Ásmundur Einar Daðason.
Ásmundur Einar Daðason. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, hefur ákveðið að framlengja um 12 mánuði frest fyrirtækja og stofnana til að öðlast jafnlaunavottun samkvæmt ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. 

Framlengingin tekur til fyrirtækja og stofnana, óháð stærð þeirra. Reglugerðin tók gildi í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Fram kemur, að reglugerðin feli í sér viðbótarákvæði við reglugerð um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85. Með ákvörðun sinni nýtir ráðherra heimild sína til frestunar sem kveðið er á um í bráðabirgðaákvæði VI samkvæmt breytingu á fyrrnefndum lögum sem samþykkt var á Alþingi 1. júní 2017.

Framlengdur frestur nær þó ekki til allra

Tekið er fram, að aukinn frestur samkvæmt ákvörðun ráðherra nái ekki til opinberra stofnana, sjóða og fyrirtækja sem eru að hálfu eða að meiri hluta í eigu ríkisins með 25 starfsmenn eða fleiri að jafnaði á ársgrundvelli.

„Framantaldir aðilar skulu hafa öðlast vottun á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess samkvæmt 4. mgr. 19. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, eða staðfestingu samkvæmt 5. mgr. sömu lagagreinar, eigi síðar en 31. desember 2019.

Aukinn frestur nær heldur ekki til Stjórnarráðs Íslands sem skal hafa öðlast vottun eða staðfestingu á jafnlaunakerfi og framkvæmd þess samkvæmt lögum, eigi síðar en 31. desember 2018,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert