Afhenda óklárað sjúkrahótel

Enn er gert ráð fyrir því að sjúkrahótelið við Landspítalann …
Enn er gert ráð fyrir því að sjúkrahótelið við Landspítalann verði tekið í notkun á næsta ári, en vegna ágreinings hefur Munck Íslandi ehf. afhent verkið óklárað í dag. mbl.is/​Hari

Nýi Landspítalinn, NLSH ohf., fær í dag afhent sjúkrahótel af Munck Íslandi ehf. þrátt fyrir að framkvæmdum á sjúkrahótelinu og lóð þess samkvæmt verksamningi og útboðsgögnum er ekki lokið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Hringbrautarverkefninu sem var send fjölmiðlum í dag.

Vegna ágreiningsins óskaði NLSH ohf. eftir því að verkskil og afhending færi fram tafarlaust, en samkvæmt samningi við verktakann hefur NLSH ohf. heimildir til slíks.

Afhendingin er samkvæmt samkomulagi sem var gert eftir að upp kom ágreiningur milli NLSH ohf. og verktakans Munck Íslandi ehf. og hefur hann snúið að tímasetningu umsaminna verkloka, skilaástandi og ábyrgð á athugasemdum vegna verklokaúttektar, orsökum á töfum verksins, tafabótum, réttmæti reikninga, skaðabótum vegna tafa, verkgæðum og annmörkum á verkinu.

„Nú í kjölfar afhendingar getur verkkaupi lokið því sem eftir stendur af verkframkvæmdum án þess að leysa þurfi fyrst úr fyrrgreindum ágreiningi aðila,“ segir í tilkynningunni.

NLSH ohf. og Munck Íslandi ehf. hafa gert milli sín gerðardómssamning sem gerir ráð fyrir að gerðardómur fjalli um ágreiningsatriðin með bindandi hætti. Þá munu aðilar að deilunni ekki tjá sig um kröfur sínar fyrr en kostnaðaruppgjör framkvæmdarinnar liggur fyrir að lokinni niðurstöðu gerðardóms.

Fram kemur að „NLSH ohf. mun við yfirtöku á húsinu og lóð, ganga til fullnustu þeirra verka sem nauðsynlegt er til að koma húsinu í rekstrarhæft ástand, en stefnt er að því að allur innbúnaður verði kominn í húsið við árslok og húsið tilbúið til afhendingar til stjórnvalda í upphafi næsta árs.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert