Veðurfræðingur Vegagerðarinnar segir að útlit sé fyrir hríð, skafrenning og slæmt skyggni á Hellisheiði og öðrum fjallvegum suðvestanlands milli klukkan 18 og 21 í kvöld þegar skil með suðaustanhvassviðri og úrkomu fara hratt norðaustur yfir landið í kvöld og nótt. Eins í kvöld í uppsveitum Suðurlands. Hlánar á láglendi á höfuðborgarsvæðinu.
Höfuðborgarsvæðið: Hálkublettir eru á öllum stofnbrautum.
Suðvesturland: Hálkublettir og éljagangur er á Reykjanesbraut og á Grindavíkurvegi, hálka og éljagangur er á Hellisheiði, Sandskeiði og á Vesturlandsvegi upp í Borgarfjörð. Hálka, snjóþekja og éljagangur á öðrum leiðum.
Vesturland: Hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði en snjóþekja og éljagangur á öðrum fjallvegum. Hálka, snjóþekja og éljagangur er á öllum öðrum leiðum og talsvert um éljagang.
Vestfirðir: Snjóþekja og hálka og eitthvað um éljagang.
Norðurland: Vetrarfærð, snjóþekja, hálka og hálkublettir.
Norðausturland: Hálka og snjóþekja og töluverður skafrenningur. Þungfært er á Hólasandi.
Austurland: Hálka er á Héraði. Hálka er á Fjarðarheiði, Vatnsskarði eystra og Fagradal en hálkublettir eru með ströndinni.
Suðausturland: Hálka, hálkublettir og eitthvað um éljagang.
Suðurland: Hálka, snjóþekja og éljagangur.