Bifreið af gerðinni Land Rover Discovery, sem stolið var frá Bjarnarstíg í Reykjavík í aðfaranótt þriðjudags, er komin í leitirnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu sem þakkar fyrir veitta aðstoð.
Eigandi bifreiðarinnar, Soffía Sigurgeirsdóttir, segir að lögreglan hafi fundið bílinn einan og yfirgefinn í Breiðholti í nótt og er hún himinlifandi. „Við vorum búin að gefa upp alla von í gærkvöldi,“ segir hún. Bíllinn virðist ekki hafa orðið fyrir skemmdum að sögn Soffíu en fyrsta skref eftir fundinn er að fara með bílinn í þrif.
Að hennar sögn hefur lögreglan einhverja grunaða og hafa nokkrir menn verið boðaðir í skýrslutöku vegna málsins í dag.
Soffía sagði í samtali við mbl.is í gær að ákveðið hefði verið að veita 200 þúsund krónur í fundarlaun en þau verða ekki greidd út þar sem lögreglan fann bílinn. „Við höldum bara áfram að styrkja kór lögreglunnar eins og við höfum alltaf gert,“ segir Soffía og hlær.
Fréttin hefur verið uppfærð.