Sagafilm kaupir sjónvarpsrétt á Hilmu

Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm, Ragnar Agnarsson, leikstjóri/framleiðandi hjá Sagafilm, Óskar …
Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm, Ragnar Agnarsson, leikstjóri/framleiðandi hjá Sagafilm, Óskar Guðmundsson rithöfundur, Pétur Már Ólafsson frá Bjarti & Veröld. Ljósmynd/Sagafilm

Sagafilm hefur tryggt sér rétt til að þróa leikna sjónvarpsþáttaröð byggða á skáldsögunni Hilmu eftir Óskar Guðmundsson. Pétur Már Ólafsson hjá Bjarti & Veröld og Hilmar Sigurðsson, forstjóri Sagafilm undirrituðu í dag samning þess efnis að Sagafilm getur þróað og framleitt sjónvarpsþáttaröð byggða á skáldsögunni.

„Þegar ég las Hilmu eftir Óskar Guðmundsson fannst mér sagan strax steinliggja sem sjónvarpssería. Við erum afar ánægð með að Sagafilm skuli ætla að veðja á lögreglukonuna Hilmu, hún gæti ekki verið í betri höndum og við bíðum í eftirvæntingu eftir því að sjá hana lifna á skjánum” er haft eftir Pétri Má Ólafssyni, útgefanda Bjarts & Veraldar, í tilkynningu.

Hilma kom fyrst út árið 2015 og fékk frábærar móttökur, bæði hjá lesendum og gagnrýnendum. Hilma hlaut Blóðdropann árið 2016 sem besta íslenska glæpasagan og var í framhaldinu framlag til Íslands til Glerlykilsins sem besta glæpasagan á Norðurlöndunum.

„Mér og skáldsögu minni er varla sýndur meiri heiður en sá að Sagafilm ætli sér að gera sjónvarpsþætti um Hilmu. Karakterinn Hilma er mér afar kær og ég er þess fullviss að áhorfendur eigi einnig eftir að hrífast af henni, þessari kröftugu persónu sem og störfum hennar hjá rannsóknarlögreglunni.“ segir Óskar Guðmundsson, höfundur Hilmu.

Hilma fjallar um samnefnda lögreglukonu sem fær sjálfsvíg til rannsóknar. Málið tekur óvænta stefnu þegar Hilma tengir það þremur eldri dauðsföllum sem hafa verið afgreidd sem slys eða sjálfsvíg. Öll eiga þessi mál rætur að rekja til atburðar sem átti sér stað fyrir meira en tveimur áratugum. Sjálf er Hilma skyndilega komin í æsispennandi kapphlaup við tímann þegar harðsvíraður glæpamaður er fast á hæla henni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert