Þórunn Egilsdóttir, þingmaður og þingflokksformaður Framsóknarflokksins, hefur greinst með brjóstakrabbamein. Hún segir meinið þess eðlis að hún þurfi að fara í harða meðferð gegn því og að hún muni draga sig út úr þingstörfum og kalla inn varamann í sinn stað.
Frá þessu greinir hún í færslu á Facebook-síðu sinni.
„Ég óskaði ekki eftir þessu verkefni frekar en nokkur annar sem fær þetta tilboð í lífinu. En ég ætla að einhenda mér í verkið af öllum mínum mikla þunga. Ég hef aldrei farið í baráttu til að tapa og hyggst ekki byrja á því núna. Bjartsýn, einbeitt, ákveðin og umvafin mínu fólki ætla ég að takast á við verkefnið,“ skrifar Þórunn.