Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur hafið vinnu við heildarendurskoðun á opinberum eftirlitsreglum sem heyra undir ráðuneytið og samkvæmt fréttatilkynningu á vef ráðuneytisins verður einföldun afgreiðsluferla vegna leyfisveitinga og bætt þjónusta við leyfisumsækjendur sett í forgang í þeirri vinnu.
„Heildarendurskoðunin er í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar en í honum er lögð áhersla á að stjórnsýslan sé bæði skilvirk og réttlát og jafnframt mælt fyrir um að átak verði gert í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings,“ segir á vef ráðuneytisins.
Í stýrihópnum sitja fulltrúar ráðuneytisins, Matvælastofnunar, Fiskistofu, Ferðamálastofu, Neytendastofu, Orkustofnunar og Samkeppniseftirlitsins.