Tvö umferðaróhöpp voru í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í nótt. Ökumaður, sem talið er að hafi dottað undir stýri, ók á vegrið á hringveginum í Öxnadal, skammt frá Miðdal, seint í nótt. Bifreiðin er töluvert skemmd en ökumaðurinn slapp ómeiddur en vegriðið kom í veg fyrir að hann missti bifreiðina út af.
Í hinu tilvikinu var bifreið ekið á skilti innanbæjar á Akureyri. Engin slys urðu á fólki.