Tilkynnt var um hest í íbúðahverfi í Árbænum um níuleytið í morgun.
Fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að hesturinn hafi ekki fundist þrátt fyrir leit.
Um svipað leyti í morgun barst tilkynning um bifreið sem hafði runnið á aðra bifreið á svæði 105 í Reykjavík. Báðar bifreiðarnar voru mannlausar og urðu engin slys á fólki.
Aðili í annarlegu ástandi var handtekinn í miðborginni í morgun. Við öryggisleit fundust á honum fíkniefni. Í Kópavogi var maður stöðvaður í akstri. Hann reyndist undir áhrifum áfengis og hafði einnig verið sviptur ökuréttindum.