Um 150 bílar stöðvaðir við eftirlit

Lögreglumaður við umferðareftirlit. Mynd úr safni.
Lögreglumaður við umferðareftirlit. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um 150 bifreiðir á Reykjanesbraut við Innri-Njarðvík í gærkvöld í hefðbundnu umferðareftirliti. Allir ökumenn reyndust hafa sitt á hreinu nema einn sem ók sviptur ökuréttindum.

Á undanförnum dögum hafa á annan tug ökumanna í umdæminu verið kærðir fyrir of hraðan akstur Sá sem hraðast ók mældist á 151 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Annar ökumaður var grunaður um ölvunarakstur, að því er lögreglan greinir frá.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af sex bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar og tveir óku án ökuréttinda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka