Wizz air á hverjum degi til London

Wizz air fjölgar ferðum frá Keflavík til London.
Wizz air fjölgar ferðum frá Keflavík til London.

Ungverska flugfélagið Wizz air hyggst fljúga frá Keflavík til Luton-flugvallar í London sjö sinnum í viku. Mun þessi breyting taka í gildi í lok maí og standa til loka októbermánaðar hið minnsta en þá lýkur sumaráætlun Isavia.

Þetta staðfesti Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, við ViðskiptaMoggann. Fjölgar ferðum flugfélagsins til London um þrjár frá Keflavík. Þá hyggst félagið einnig fjölga ferðum til Varsjár úr fjórum í fimm. Mun sú breyting taka gildi strax.

Að sögn Guðjóns eru þessar breytingar bein afleiðing af samskiptum Isavia við flugfélög um að bregðast við breyttum aðstæðum á flugmarkaði í kjölfar gjaldþrots WOW air í síðustu viku.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert