Matvælastofnun fylgist náið með veikindum hrossa þessa dagana en nokkuð er um veikindi í hrossum um þessar mundir, einkum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og Vesturlandi, að því er fram kemur í tilkynningu frá stofnuninni.
„Einkennin minna á hitasóttina annars vegar og smitandi hósta hins vegar og flest bendir til að smitefni sem hér urðu landlæg í kjölfar faraldranna árin 1998 og 2010 séu að minna á sig,“ segir í frétt á vef Mast.
Hestarnir verða alla jafna ekki alvarlega veikir en fylgjast þarf með þeim og kalla til dýralækni ef líkamshitinn mælist hærri en 38,5°C. Forðast skal að hafa hestana mikið inni við í smituðu lofti og gagnlegt getur verið að hreinsa hesthús vel til að minnka smitálagið.
Matvælastofnun fylgist náið með ástandinu en telur ekki ástæðu til aðgerða að svo stöddu.