Tatjana Latinovic nýr formaður Kvenréttindafélagsins

Tatjana Latinovic var kjörin nýr formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi …
Tatjana Latinovic var kjörin nýr formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær, fyrst kvenna af erlendum uppruna. Ljósmynd/Aðsend

Tatjana Latinovic var kjörin nýr formaður Kvenréttindafélags Íslands á aðalfundi félagsins í gær. Tatjana er fyrsti formaður Kvenréttindafélagsins af erlendum uppruna, en félagið var stofnað af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur árið 1907.

„Kvenréttindafélag Íslands á sér 112 langa sögu í baráttu fyrir jafnrétti. Ég er stolt að fá tækifæri til að feta í fótspor kvenna sem hafa gegnt formennsku á undan mér og hlakka til að leggja mitt að mörkum að leiða það í áframhaldandi baráttu fyrir jafnrétti fyrir alla,“ sagði Tatjana í ávarpi til fundargesta á aðalfundi.

Tatjana hefur setið í stjórn Kvenréttindafélagsins frá 2015 og gegnt embætti varaformanns frá þeim tíma. Í tilkynningu frá félaginu segir að Tatjana hefur verið baráttukona fyrir kvenréttindum og réttindum innflytjenda síðan hún flutti til Íslands árið 1994. Hún er einn stofnenda W.O.M.E.N. in Iceland – Samtaka kvenna af erlendum uppruna, og sat í stjórn frá stofnári 2003 til 2012, þar af sem formaður 2004-2008. Hún sat einnig í stjórn Kvennaathvarfsins, frá 2004 til 2012. Tatjana er formaður Innflytjendaráðs og situr í Jafnréttisráði fyrir hönd Kvenréttindafélagsins.

Fríða Rós Valdimarsdóttir lét af formennsku eftir fjögur ár og átta ára stjórnarsetu og á fundinum voru fimm nýjar konur kosnar í stjórn,  þær Bergljót Tulinius Gunnlaugsdóttir, Eva Huld Ívarsdóttir, Stefanía Sigurðardóttir, Helga Baldvins Bjargardóttir og Hjördís Guðný Guðmundsdóttir. Taka þær sæti í stjórn Kvenréttindafélagsins þar sem áfram sitja Ellen Calmon, Helga Dögg Björgvinsdóttir, Hildur Helga Gísladóttir og Steinunn Stefánsdóttir.

Úr stjórn viku Dagný Ósk Aradóttir Pind, Katrín Júlíusdóttir, Sunna Gunnars Marteinsdóttir og Vilborg Ólafsdóttir. 

Stjórn og framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands 2019. Á mynd: Brynhildur Heiðar- …
Stjórn og framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands 2019. Á mynd: Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, Steinunn Stefánsdóttir, Ellen Calmon, Tatjana Latinovic, Eva Huld Ívarsdóttir, Helga Baldvins Bjargardóttir, Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, Stefanía Sigurðardóttir, Bergljót Tulinius Gunnlaugsdóttir, Helga Dögg Björgvinsdóttir og Hildur Helga Gísladóttir. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert