Karlmaður á sjötugsaldri lést skammt frá bóndabæ í Þistilfirði um hádegisbil í gærdag. Maðurinn hafði verið við störf á fjórhjóli úti á túni og komu ættingjar hans að honum þar sem hann lá við hliðina á fjórhjólinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Lögregla og sjúkraflutningamenn voru send á staðinn auk félaga úr björgunarsveitinni Hafliða, ef á þyrfti að halda.
„Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur og úrskurðaði læknir manninn látinn á vettvangi,“ segir í tilkynningu lögreglu.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Norðurlandi eystra er með málið til rannsóknar, en ekki verður greint frá nafni mannsins sem lést að svo stöddu.