Fara þarfi yfir framkvæmd útlendingalaganna

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrir miðju.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fyrir miðju. mbl.is/​Hari

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir dómsmálaráðherra segir á facebooksíðu sinni að hún hafi lengi talið að „fara þurfi sérstaklega yfir framkvæmd“ útlendingalaganna þegar börn eru annars vegar.

„Framkvæmdin þarf að fullu að samræmast anda laganna – sem er mannúð og að taka skuli sérstakt tillit til barna,“ skrifar hún, en segir jafnframt að hún geti ekki tjáð sig um málefni afgönsku fjölskyldnanna tveggja sem til stendur að senda úr landi til Grikklands eftir að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi var hafnað.

Ráðherrann segir að til þess að tryggja jafnræði hafi hún ekki heimild til þess að „stíga inn í einstök mál“.

Hún greinir frá því að í síðustu viku hafi farið fram ráðherrafundur um útlendingamál. „Á þeim fundi sátu, auk forsætisráðherra, ég sem dómsmálaráðherra, félags- og barnamálaráðherra, fulltrúi heilbrigðisráðherra, menntamálaráðherra og sveitarstjórnarráðherra. Þetta sýnir inn á hvaða svið þessi mál fara og sýnir að við verðum að taka með heildstæðari hætti á þeim,“ skrifar hún m.a.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert