Helgi ráðinn yfirlögfræðingur Landsvirkjunar

Helgi Jóhannesson nýr yfirlögfræðingur Landsvirkjunar
Helgi Jóhannesson nýr yfirlögfræðingur Landsvirkjunar Ljósmynd/Aðsend

Helgi Jóhannesson lögmaður hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsvirkjunar. Hann hefur verið einn af eigendum LEX lögmannsstofu um árabil. Hann var stjórnarmaður í Landsvirkjun á árunum 2014-2017. Auk kandídatsprófs í lögum frá Háskóla Íslands og réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi og Hæstarétti er Helgi með LL.M (Master of Law) gráðu frá lagadeild Háskólans í Miami.

Helgi hefur verið stjórnarmaður og formaður Lögfræðingafélags Íslands og Lögmannafélags Íslands, auk þess að hafa verið stundakennari í viðskiptalögfræði við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.

Helgi hefur mikinn áhuga á útivist og er í stjórn Ferðafélags Íslands. Helgi er þriggja barna faðir. Sambýliskona hans er Þórný Jónsdóttir markaðsfræðingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert