Bjarni kjörinn varaformaður bankaráðs AIIB

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra. mbl.is/Eggert

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur verið kjörinn varaformaður bankaráðs asíska innviðafjárfestingarbankans á ársfundi bankans sem haldinn var í Lúxemborg á föstudag og laugardag.

Bankinn, sem þekktur er undir skammstöfuninni AIIB, er ung en öflug og ört vaxandi alþjóðafjármálastofnun að því er segir í tilkynningu frá stjórnarráðinu.

Bent er á að hún hafi verið stofnuð utan um samstarf þjóða til að taka á innviðafjárfestingarþörf í Asíu, styrkja tengingar og hagræna þróun á svæðinu og styðja þannig við hagvöxt og aðgengi íbúa að grunnþjónustu.

„Kínverjar höfðu forystu um stofnun bankans og er þetta í raun fyrsta alþjóðastofnunin sem þeir leiða. Bankinn hóf starfsemi í janúar 2016, eftir um 15 mánaða undirbúningstíma. Við skipulag bankans er byggt á reynslu alþjóðaþróunarbanka og er áhersla lögð á opna, óháða og gagnsæja stjórnarhætti og skýr ábyrgðarskil,“ segir í tilkynningunni.

Ísland á varamann næst árin 2022-2024

Ísland var meðal 57 stofnenda, ásamt öllum Norðurlöndunum, en eftir ársfundinn í vikunni eru félagar orðnir 100. Hlutafé bankans nemur 100 milljörðum bandaríkjadala og er Ísland í kjördæmi með Bretlandi, Danmörku, Noregi, Póllandi, Rúmeníu Sviss, Svíþjóð og Ungverjalandi.

Löndin deila saman stjórnarmanni í bankanum sem nú er frá Bretlandi. Ísland var með varamann í stjórn fyrsta hálfa starfsár bankans og mun eiga varamann næst árin 2022-2024.

Í vikunni samþykkti bankinn að fjármagna, ásamt efnahags- og þróunarbankanum, fyrsta jarðvarmaorkuverkefni bankans, í Tyrklandi, en að því koma tvö íslensk ráðgjafafyrirtæki. Bankinn hefur nú samþykkt fjárfestingar í 40 verkefnum í 27 löndum fyrir samtals um átta milljarða dollara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert