Ferðafrelsi EES-ríkisborgara óskert til 31. október

Sendiherra Íslands í London, Stefán Haukur Jóhannesson, segir það sérstakt …
Sendiherra Íslands í London, Stefán Haukur Jóhannesson, segir það sérstakt áhyggjuefni hversu fáir íslenskir ríkisborgar hafa sótt um svokallaðan Settled Status en hingað til hafa eingöngu borist um 200 umsóknir frá Íslendingum. AFP

Breskir miðlar hafa greint frá því í vikunni að frjáls för fólks kunni að stöðvast strax í kjölfar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Í tilefni þessara frétta vill sendiráð Íslands í London árétta að það á ekki við um EES-ríkisborgara sem flytja til Bretlands fyrir 31. október nk. 

Að sama skapi hafa bresk yfirvöld staðfest í fjölmiðlum að fréttir um að ríkisborgarar frá ríkjum innan EES þurfi að greiða fyrir þjónustu í breska heilbrigðiskerfinu (NHS) eftir Brexit eigi ekki við þá sem flytja til Bretlands fyrir 31. október á þessu ári.

Áhyggjuefni hversu fáir hafa sótt um „Settled Status“

Í frétt á vef Stjórnarráðsins kemur fram að sendiherra Íslands í London, Stefán Haukur Jóhannesson, segir það sérstakt áhyggjuefni hversu fáir íslenskir ríkisborgar hafa sótt um svokallaðan „Settled Status“ en hingað til hafa eingöngu borist um 200 umsóknir frá Íslendingum. 

„Við mælum eindregið með því að fólk sæki um sem allra fyrst þar sem óvissa ríkir enn um útfærslu á útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Þó að samningar hafi náðst við bresk stjórnvöld um réttindi borgara eftir Brexit þá þurfa allir sem hér dvelja og hyggjast gera svo áfram að hafa réttindi til búsetu, þ.e. settled status eða pre-settled status.“

Eftir sem áður er tímafrestur til að skila inn umsókn til 31. desember 2020 en Stefán Haukur segir sendiráðið vilja beina því til Íslendinga í Bretlandi að draga það ekki of lengi að sækja um. Þar sem farið er handvirkt yfir hverja umsókn sem berst má við því búast við afgreiðslutími lengist þegar nær dregur vegna aukins fjölda umsókna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert