Þyrla á leið að sækja veikan sjómann

Þyrla Landhelgisgæslunnar er í útkalli.
Þyrla Landhelgisgæslunnar er í útkalli. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna veiks sjómanns um borð í skipi út af Langanesi. Björgunarsveit á svæðinu hefur einnig verið kölluð til aðstoðar. Þyrlan hóf sig til flugs frá Reykjavík rétt fyrir klukkan eitt. Einstaklingurinn er sagður íslenskur. 

Frekari upplýsingar fengust ekki að svo stöddu.

Fréttin verður uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert