Þriggja stiga frost á Þingvöllum

Kort/Veðurstofa Íslands

Aðgerðalítið veður í dag en síðan er von á votviðri í nokkra daga. Það hefur verið svalur loftmassi yfir landinu síðustu daga. Sums staðar hefur gránað í fjöll og næturfrost hefur mælst á stöku stað. Síðastliðna nótt lét frostið einnig á sér kræla og ber helst að nefna Suðurland í því sambandi. Þar mældist mest 3,3 stiga frost á Kálfhóli og 3,2 stiga frost á Þingvöllum. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Í dag er útlit fyrir aðgerðalítið veður á landinu. Lítil eða engin úrkoma er í kortunum og vindur með hægasta móti. Helst er að sjáist til sólar á Suður- og Vesturlandi og þar verður væntanlega hlýjast, hitinn gæti skriðið yfir 10 stig á einhverjum mælistöðvum.

Á morgun skiptir um gír í veðrinu, en þá gera spár ráð fyrir að hefjist mjög blautur kafli á landinu sem virðist eiga að standa nánast sleitulaust alveg fram á helgi. Raka loftið sem færist yfir landið er af suðlægum uppruna og loftmassinn er tiltölulega hlýr sem þýðir að hitinn verður oft um eða yfir 10 stig í rigningunni,“ segir ennfremur í hugleiðingum veðurfræðings.

Spáin næstu daga

Hæg breytileg átt í dag. Bjartviðri um landið vestanvert, þurrt að kalla norðanlands, en skúrir á Suðausturlandi.
Suðaustan og austan 8-15 m/s á morgun, en 15-20 með suðurströndinni þangað til síðdegis. Víða rigning, talsverð á suðurhelmingi landsins.
Hiti 6 til 11 stig yfir daginn.

Á miðvikudag:

Suðaustan 8-15 m/s, en 15-20 með suðurströndinni fram yfir hádegi. Víða rigning, talsverð á suðurhelmingi landsins. Hiti 4 til 12 stig, mildast syðst.

Á fimmtudag:
Sunnan 8-13 og talsverð rigning, en þurrt að kalla á norðaustanverðu landinu undir kvöld. Hiti 8 til 14 stig.

Á föstudag og laugardag:
Suðlæg eða breytileg átt og rigning með köflum um allt land. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:
Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og þurrt að kalla á landinu, en bjart á köflum sunnanlands. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast syðra.

Á mánudag (haustjafndægur):
Útlit fyrir suðaustan- og austanátt með vætu og mildu veðri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert