Mikið um utanvegaakstur

Slæm aðkoma við Friðland að fjallabaki nýlega.
Slæm aðkoma við Friðland að fjallabaki nýlega.

Landverðir hafa orðið varir við mikinn utanvegaakstur síðustu daga við Friðland að Fjallabaki. Sá lengsti var um tveggja kílómetra langur. Mikilvægt er að ökumenn virði lög og reglur, að því er fram kemur í tilkynningu frá Umhverfisstofnun.

Vegna snjókomu og skafrennings aðfaranótt sunnudagsins 15. september sl. lentu margir bílar í vandræðum á Sigölduleið (208) og festu sig. Af því tilefni ákvað Vegagerðin í samráði við landverði Umhverfisstofnunar að merkja veginn ófæran. Þegar snjór safnast í vegi á hálendinu aka því miður margir utan vega til að forðast skafla.

Landverðir hafa unnið við að afmá förin sem er tímafrekt verkefni en nauðsynlegt til að koma í veg fyrir að aðrir bílar aki eftir hjólförum sem hafa myndast utan vega. Slæmt veður hefur verið á svæðinu og förin enn sýnileg. Þótt næturfrost og snjókoma hafi verið undanfarið á hálendinu er jörðin ekki frosin og allur utanvegaakstur er bannaður samkvæmt lögum um náttúruvernd.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert