Vill hefja söluferli Íslandsbanka á næstu vikum

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, vill Íslandsbanka í söluferli á næstu vikum.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, vill Íslandsbanka í söluferli á næstu vikum. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarni Benediktsson, fjármála- efnahagsráðherra, vonast til að sala ríkisins á Íslandsbanka geti hafist á næstu vikum. Fram kom í tíufréttum RÚV að Bjarni vill láta á það reyna hvort ríkisstjórnin fái tillögu frá Bankasýslu ríkisins og geti í framhaldinu lagt fyrir þingið áætlun um hvernig staðið verði að sölunni.

Hug­mynd­ir þess efn­is að sam­eina Ari­on banka og Íslands­banka voru fyrirferðarmiklar í fjölmiðlaumfjöllun í sumar og þá sagði Bjarni tvennt veg­ast á í því máli. „Ann­ars veg­ar er það kraf­an um að við get­um rekið hér skil­virkt banka­kerfi, þar sem kostnaði er haldið í lág­marki og við get­um aukið hagræðingu í fjár­mála­kerf­inu til hags­bóta fyr­ir viðskipta­vini, heim­ili og fyr­ir­tæki. En hins veg­ar eru það sam­keppn­is­leg álita­mál,“ sagði Bjarni í samtali við Morgunblaðið í lok júlí. 

Miklar og hraðar breytingar hafa orðið á fjármálaumhverfi heimsin og hafa íslensk fjármálafyrirtæki þurft að bregðast við, meðal annars með uppsögnum. 

Í fréttum RÚV í kvöld spurði Bjarni hversu raunhæft það væri að treysta á þriggja banka samkeppni og átti hann þá við Íslandsbanka, Arion banka og Landsbankann. 

„Það hafa komið fram sjónarmið um að við ættum að skoða sameiningu á bönkunum, sem flestir mundu telja í dag að væri andstætt samkeppnislögunum, en við höfum enn ekki stigið það skref. Og í augnablikinu erum við að einblína á að losa um eignarhald ríkisins og hitt verður áfram í skoðun,” sagði Bjarni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert