Í sjálfheldu við Tröllafoss

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt eftir hádegi vegna tveggja einstaklinga í sjálfheldu í brattlendi við Tröllafoss í Mosfellsdal.

Fyrstu björgunarsveitarmenn voru komnir á svæðið um klukkan eitt og fundu fólkið stuttu síðar. Þeir eru nú á leiðinni upp til fólksins með búnað til að tryggja öryggi þess og bjarga því niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert