UNESCO óskar upplýsinga um köfun í Silfru

Samkvæmt bréfinu, sem sent var UNESCO í byrjun ágúst, brýtur …
Samkvæmt bréfinu, sem sent var UNESCO í byrjun ágúst, brýtur starfsemin í bága við þau skilyrði sem sett eru stöðum á heimsminjaskrá UNESCO. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Yfirmaður heimsminjanefndar UNESCO hefur sent íslenskum stjórnvöldum bréf er varðar kvörtun sem nefndinni hefur borist vegna verndunar Þingvalla. 

Hefur stjórnvöldum verið gert að veita upplýsingar um ferðamannaiðnað í tengslum við Silfru, en kvörtunin snýr að því að sjö köfunarfyrirtæki fái aðgang að gjánni í hagnaðarskyni og þar kafi allt að 76.000 manns á ári með neikvæðum afleiðingum fyrir ásýnd og lífríki Silfru.

Þar séu gróðasjónarmið tekin fram yfir verndarsjónarmið, segir Jónas Haraldsson lögmaður, sem sendi UNESCO kvörtunarbréfið.

Úr verði bætt eða Þingvellir teknir af heimsminjaskrá

Samkvæmt kvörtuninni, sem send var UNESCO í byrjun ágúst, brýtur starfsemin í bága við þau skilyrði sem sett eru stöðum á heimsminjaskrá UNESCO og er þess krafist að úrbætur verði gerðar, þ.e. að starfseminni verði hætt, ellegar verði Þingvellir fjarlægðir af heimsminjaskrá.

Þingvellir voru fyrsti íslenski staðurinn á heimsminjaskrá, en síðar bættust við Surtsey og á þessu ári var Vatnajökulsþjóðgarði bætt á listann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert