Gripinn í tvígang án réttinda í atvinnuakstri

Maðurinn var að aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar með farþega …
Maðurinn var að aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar með farþega í bifreiðinni þegar lögregla stöðvaði hann. Þegar hann gat ekki framvísað tilskildum leyfispappírum var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð. mbl.is/RAX

Erlendur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stóð að því að flytja farþega gegn gjaldi um helgina reyndist ekki hafa ökuréttindi til farþegaflutninga í atvinnuskyni. Þá var hann ekki með skráð dvalarleyfi hér á landi.

Fram kemur í tilkynningu lögreglu að maðurinn var að aka frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar með farþega í bifreiðinni þegar lögregla stöðvaði hann. Þegar hann gat ekki framvísað tilskildum leyfispappírum var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem tekin var af honum skýrsla.

Þetta er í annað sinn á árinu sem maðurinn er staðinn að slíkum verknaði. Í febrúar hafði lögregla afskipti af honum vegna svipaðs máls. Þá var hann í akstri með þrjá farþega sem voru nýkomnir úr flugi. Hann hefur með þessu gerst tvívegis brotlegur við lög um útlendinga og lög um akstur með farþega í atvinnuskyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert