Skiptar skoðanir á sölu áfengis í verslunum

Fleiri eru hlynntir sölu léttvíns og bjór í matvöruverslunum en …
Fleiri eru hlynntir sölu léttvíns og bjór í matvöruverslunum en andvígir. mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Meiri stuðningur en mótstaða er meðal Íslendinga við sölu léttvíns og bjórs í matvöruverslunum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Lítil breyting er á afstöðu frá síðustu mælingu. 

Rúmlega 44% eru hlynnt sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum, en 40% eru andvíg. Hins vegar eru 67,5% andvíg sölu á sterku áfengi í verslunum, en 18% eru hlynnt. 

Þeir sem myndu kjósa Pírata ef gengið væri til kosninga í dag eru hlynntastir sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum, eða um 64%. Þeir sem myndu kjósa Miðflokkinn eru aftur á móti andvígastir, en aðeins um 24% þeirra eru hlynnt á meðan rúmlega 66% eru andvíg sölu á bjór og rúmlega 68% andvíg sölu á léttvíni í matvöruverslunum. 

Karlar virðast almennt vera hlynntari sölu á áfengi í matvöruverslunum. Mestur er munurinn á stuðningi við sölu á sterku áfengi, en þar eru 24% karla hlynnt samanborið við tæplega 9% kvenna. 

Þá hefur aldur einnig áhrif á stuðning við sölu áfengis í matvöruverslunum. Því yngri sem svarendur eru, þeim mun hlynntari eru þeir sölu á áfengi. Yngstu svarendur, 18—29, eru í öllum tilfellum hlynntastir sölu á áfengi, en þeir elstu, 60 ára og eldri, eru í öllum tilfellum andvígastir. 

Svarendur voru alls 859 talsins og koma úr Þjóðgátt Maskínu, hópur sem valinn er af tilviljun úr Þjóðskrá. Svarendur koma alls staðar að af landinu og eru á aldrinum 18 ára og eldri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert