Sveitarstjóra Borgarbyggðar sagt upp

Gunnlaugur A. Júlíusson.
Gunnlaugur A. Júlíusson. mbl.is/Styrmir Kári

Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur sagt Gunnlaugi A. Júlíussyni upp störfum, en Gunnlaugur var ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar fyrir þremur árum. 

Fram kemur á vef sveitarfélagsins, að mismunandi sýn á stjórnun sveitarfélagsins „gerir það að verkum að sveitarstjórn og Gunnlaugur hafa ákveðið að slíta samstarfi.

Gunnlaugur hefur frá því að hann kom til starfa fyrir sveitarfélagið unnið vel að mörgum mikilvægum málum og er honum þakkað fyrir sitt framlag,“ segir í yfirlýsingunni.

Tekið er fram að sveitarstjórn standi einhuga á bak við þessa ákvörðun.

Gunnlaugur kaus að tjá sig ekki um málið þegar blaðamaður mbl.is leitaði eftir því.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert