Jeppi valt á Borgarvegi í Grafarvogi um 11-leytið í morgun. Ökumaður hans var fluttur á slysadeild til skoðunar, en er ekki talinn mikið slasaður samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu.
Bíllinn lenti á hvolfi og samkvæmt upplýsingum slökkviliðs var óvíst um hvort hægt væri að aka honum af slysstað.