Sýni ábyrgð og haldi aftur af hækkunum

Fasteignagjöld, þ.m.t. fasteignagskattar vega í mörgum tilfellum þungt í útgjöldum …
Fasteignagjöld, þ.m.t. fasteignagskattar vega í mörgum tilfellum þungt í útgjöldum heimilanna.

Alþýðusambandið ítrekar nauðsyn þess að sveitarfélög sýni ábyrgð og styðji við lífskjarasamningana með því að halda aftur af hækkunum á gjaldskrám, rétt eins og yfirlýsing Sambands íslenskra sveitarfélaga frá síðasta vori kvað á um.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum.

Fram kemur, að Alþýðusambandinu hafi borist fregnir af því að sum sveitarfélög hafi gefið út að þau ætli að halda hækkunum á gjaldskrám, þ.m.t. fasteignagjöldum, innan við 2,5% og taki þannig ábyrgð og þátt í að stuðla að verðstöðugleika í samfélaginu sem sé vel.  

„Það á þó því miður ekki við um öll sveitarfélög en fréttir hafa borist af því að sum þeirra ætli sér að láta íbúa bera miklar gjaldskrárhækkanir á komandi ári og draga þannig úr þeim ávinningi sem lífskjarasamningunum var ætlað að skila.

Þá virðast sum sveitarfélög ætla að hækka fasteignaskatta og önnur fasteignagjöld langt umfram verðbólgu og bera fyrir sig þau rök að fasteignaskattar falli ekki undir gjaldskrár sveitarfélaga,“ segir ASÍ.

Tekið er fram, að fasteignaskattar séu meðal þeirra útgjaldaliða sem fasteignagjöld samanstandi af og falli þeir því undir gjaldskrár sveitarfélaga sem séu ákvarðaðar á ári hverju, rétt eins og leikskólagjöld og önnur gjöld.

„Fasteignagjöld, þ.m.t. fasteignagskattar, vega í mörgum tilfellum þungt í útgjöldum heimilanna og ljóst er að það dugar skammt að halda aftur af hækkunum á aðgangseyri ofan í sundlaugar ef hækka á fasteignaskatta á sama tíma.

Alþýðusambandið krefst þess að sá ávinningur sem kjarasamningarnir hafa veitt heimilum landsins verði ekki eyðilagður með hækkun gjalda. Sveitarfélögum landsins ber að fara að fordæmi þeirra sveitarfélaga sem ætla að sýna ábyrgð og halda aftur af hækkunum á öllum þeim gjaldskrám sem snerta heimili landsins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert