Um sjö þúsund atvinnulausir í janúar

Um 7 þúsund manns voru atvinnulausir í janúar.
Um 7 þúsund manns voru atvinnulausir í janúar. mbl.is/Golli

Fjöldi atvinnulausra var rétt um 7.000 í janúar samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar, eða 3,4% af vinnuaflinu.

Árstíðarleiðrétt atvinnuþátttaka var 81% á meðan árstíðarleiðrétt hlutfall starfandi var 78%, að sögn Hagstofunnar.

Árstíðarleiðrétt leitni atvinnuleysis síðustu sex mánaða heldur áfram að vera stöðug, en leitni hlutfalls starfandi stígur lítið eitt upp á við, eða úr 77,6% í ágúst í 77,9% í janúar. Einnig má sjá örlítinn stíganda upp á við í hlutfalli atvinnuþátttöku yfir sama tímbil, eða um 0,2 prósentustig.

Samkvæmt óleiðréttri mælingu er áætlað að um 209.000 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í janúar 2020.

Þegar hlutfall atvinnulausra er borið saman við janúar í fyrra má sjá að atvinnleysi hefur aukist um 0,7 prósentustig og hlutfall starfandi lækkað yfir sama tímabil um 1,4 prósentustig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert