Þjóðaröryggisráð fundar um viðbrögð og viðbúnað vegna veirunnar

Upplýsinga- og stöðufundur var haldinn í dag í þjóðaröryggisráði um viðbrögð og viðbúnað hér á landi vegna COVID-19.

Gestir fundarins voru Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins, Alma Möller landlæknir, Margrét Kristín Pálsdóttir, settur aðstoðarríkislögreglustjóri, og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá embætti ríkislögreglustjóra, að því er segir í tilkynningu. 

Á fundinum var farið yfir stöðu mála og viðbúnað almannavarna og heilbrigðiskerfisins vegna heimsfaraldursins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert