Blaðamannafundur vegna kórónuveirunnar

mbl.is/Íris Jóhannsdóttir

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur boðað til upplýsingafundar vegna kórónuveirunnar í í húsakynnum almannavarna í Skógarhlíð klukkan 14:00 í dag.

Á fundinum munu Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir fara yfir stöðu mála vegna COVID-19. Á fundinum verður einnig Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu og formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Pétur mun ræða aðgerðir á Hrafnistu vegna COVID-19 og þær áherslur sem hafa þarf í huga þegar kemur að viðkvæmum hópum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert