Klettaskóla lokað um óákveðinn tíma

Klettaskóli verður lokaður um óákveðinn tíma.
Klettaskóli verður lokaður um óákveðinn tíma. mbl.is/Hari

Starfsmaður Klettaskóla hefur greinst með kórónuveirusýkingu og í samráði við fulltrúa almannavarna og sóttvarnalæknis fellur skólahald niður um óákveðinn tíma. Þetta kemur fram á vef Klettaskóla.  

„Foreldrar og starfsmenn þess bekkjar sem viðkomandi starfsmaður starfaði í verða látnir vita um þær ráðstafanir sem gera þarf en starfsmaðurinn er sem betur fer ekki alvarlega veikur og á batavegi.“

Það verður því ekkert skólahald í dag. Farið verður yfir stöðuna með fulltrúum sóttvarnalæknis og foreldrar og starfsmenn upplýstir í kjölfarið um framhaldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert