Svo virðist sem tölvuþrjótur hafi hakkað sig inn á facebooksíðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra rétt fyrir hádegi og breytt nafni síðunnar í Viral axe. Engar aðrar breytingar virðast hafa verið gerðar á síðunni. Rúv greindi fyrst frá.
Í samtali við Rúv segir Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra, að ekki sé ljóst hvað gerðist. Tölvumenn embættisins séu að kanna það og lagfæra síðuna.