Götur borgarinnar malbikaðar fyrir tæpan milljarð

Malbikað verður af krafti í sumar í Reykjavíkurborg.
Malbikað verður af krafti í sumar í Reykjavíkurborg. mbl.is/Styrmir Kári

Götur Reykjavíkurborgar verða malbikaðar fyrir tæpan milljarð í sumar. Borgarráð heimilaði umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við malbikun í sumar. Um er að ræða bæði malbikun yfirlaga sem og endurnýjun með fræsingu og malbikun.

Áætlað er að malbika um 20,2 kílómetra af götum og áætlaður kostnaður er 784 milljónir króna. Að auki verður unnið við hefðbundnar malbiksviðgerðir og er kostnaður við þær áætlaður um 207 mkr. Áætluð upphæð malbikunarframkvæmda 2020 er því 991 mkr. 

Einnig verður lagt malbik á götur sem verða endurnýjaðar í sumar. Framkvæmdir ársins 2020 eru í samræmi við átaksáætlun um endurnýjun á malbiki á götum Reykjavíkur sem hófst árið 2018. Á árunum 2018-2022 verður um 6.200 milljónum króna varið til  endurnýjunar á malbiki í borginni. 

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert