Hnífstunguárás í Breiðholti til rannsóknar

Mikill viðbúnaður var við Jórufell í Breiðholti síðdegis í gær.
Mikill viðbúnaður var við Jórufell í Breiðholti síðdegis í gær. mbl.is/Sigurður Unnar Ragnarsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar atvik sem upp kom í Jórufelli í Breiðholti síðdegis í gær, þar sem maður var fluttur á slysadeild með áverka eftir hnífstungu.

Þetta staðfestir Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Gat hann ekki veitt nánari upplýsingar um málið að svo stöddu, en von er á tilkynningu frá lögreglunni vegna málsins síðar í dag.

mbl.is/Sigurður Unnar Ragnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert