Vegfarendur og nágrannar veittu aðstoð

Ljósmynd/Lögreglan

Eldsupptök vegna eldsvoðans sem varð í fjárhúsi í Mýrdalshreppi í gærkvöldi eru ókunn en rannsókn málsins stendur yfir. Slökkvilið Víkur hafði vakt við útihúsin fram á nótt í öryggisskyni.

Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Þegar lögregla kom á vettvang í gærkvöldi voru vegfarendur sem höfðu átt leið framhjá bænum og nágrannar sem höfðu orðið eldsins varir komu íbúunum til aðstoðar en útihúsin urðu alelda á skömmum tíma. Sauðburður stendur sem hæst og voru ær komnar að burði og hýstar í húsunum.

Með aðstoð vegfarenda náðu íbúar að bjarga flestum kindunum úr húsunum en að minnsta kosti þrjár ær og fjögur nýfædd lömb drápust.

Slökkvistarf gekk vel og tók það um 90 mínútur. Það gekk fyrst og fremst út á að verja íbúðarhúsið.

Slökkvilið þurfti meðal annars að sækja vatn á tankbíla töluvert frá bænum. Lögreglan þakkar viðbragðsaðilum fyrir snögg viðbrögð og sérstaklega þeim vegfarendum sem komu fyrstir að og aðstoðuðu við björgun sauðfjárins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert