Eldur í fjárhúsi í Mýrdal

Eldur kom upp í fjárhúsi í Mýrdal en engum varð …
Eldur kom upp í fjárhúsi í Mýrdal en engum varð meint af. mbl.is/Árni Sæberg

Slökkviliðið á Vík í Mýdal og Brunavarnir Rangárvallasýslu var kallað út um níuleytið í kvöld eftir að eldur kom upp í fjárhúsi. Skepnur voru í húsinu þegar eldurinn kom upp en þeim var bjargað og engum mönnum varð meint af.

Þetta staðfestir fulltrúi lögreglunnar á Suðurlandi í samtali við mbl.is.

Fyrsta tilkynning um eldinn barst klukkan 20:47 en rétt rúmum klukkutíma síðar var verið að slökkva í síðustu glæðum eldsins. Á tímabili var óttast að eldurinn myndi dreifa sér í nálægt íbúðarhús en komið var í veg fyrir það.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert