Tvíburi tók á móti tvíburum hjá tvíbura

Tvíburaþrenna. Klara (ljóshærð) og Rakel halda hér á tveggja mánaða …
Tvíburaþrenna. Klara (ljóshærð) og Rakel halda hér á tveggja mánaða tvíburadætrum Rakelar sem Klara tók á móti. Við hlið Klöru er Sara tvíburasystir hennar og við hlið Rakelar er Rebekka tvíburasystir hennar. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Þetta er dásamleg tilviljun. Fyrir lokaverkefni mitt í ljósmóðurfræðum var mér bent á konu sem væri barnshafandi að eineggja tvíburum og þegar ég ætlaði að hafa samband við hana og sá nafnið hennar áttaði ég mig á að þetta var hún Rakel, vinkonan frá því að ég var lítil stelpa, tvíburinn í leikskólanum.

Við höfum ekki verið í samskiptum árum saman, því að fjölskylda mín flutti burt þegar ég var sex ára,“ segir Klara, sem er tvíburi og tók á móti tvíburum Rakelar í mars.

Tvíburaþrennan kom saman, f.v. Sara, Klara, Rakel og Rebekka með nýju tvíburana, og er um þá endurfundi fjallað í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert