Hafnarfjarðarbær og Blindrafélagið hafa gert með sér þjónustusamning. Hann felur í sér að Blindrafélagið taki að sér að reka ferðaþjónustu fyrir íbúa Hafnarfjarðar sem eru greindir lögblindir af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga og geta ekki nýtt sér almenningssamgöngur vegna fötlunar sinnar.
Með þessum samningi stígur Hafnarfjarðarbær stórt skref í þjónustu við lögblinda íbúa bæjarins, að því er segir í tilkynningu.
„Ferðaþjónusta Blindrafélagsins er þjónustuúrræði sem notast við leigubifreiðar og tryggir hátt þjónustustig en um leið hagkvæma og góða lausn fyrir sveitarfélagið,“ segir í tilkynningunni.
„Samningar eru gerðir við sveitarfélög, sem samkvæmt gildandi lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, bera ábyrgð á að fötluðu fólki standi til boða stoðþjónusta sem er nauðsynleg þátttöku þess í samfélaginu án aðgreiningar þannig að það standi til jafns við aðra og komið verði í veg fyrir félagslega einangrun þess.“
Þjónustusvæði ferðaþjónustunnar er Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mosfellsbær.
Nýir umsækjendur sækja um aðgang að ferðaþjónustu Blindrafélagsins til fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðar í gegnum Mínar síður á hafnarfjordur.is sem fjallar um umsóknina í samræmi við gildandi reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.