Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Atlantsolíu á horni Bústaðavegar og Reykjanesbrautar á öðrum tímanum í dag vegna tilkynningar um mikinn eldsneytisleka en fram kom að bensín spýttist án afláts úr bensíndælu.
Þegar dælubíll slökkviliðsins kom á staðinn var búið að slökkva á bensíndælunni og einungis um minni háttar leka að ræða, samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra.
Um það bil einn fermetri var þakinn eldsneyti og rann það ofan í ræsi með olíuskilju en slökkvilið hefur lokið störfum á vettvangi.