Ekkert nýtt smit kórónuveirunnar greindist hér á landi síðasta sólarhringinn.
Þetta kemur fram á síðunni covid.is.
Alls voru 175 sýni tekin hjá Íslenskri erfðagreiningu og 24 á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
Þeim sem eru í sóttkví fjölgar um 67 á milli daga og eru þeir nú 885 talsins. Tveir eru í einangrun og 1.794 hafa náð bata. 20.984 hafa lokið sóttkví.