Mál heilabiluðu systranna „uppspuni frá rótum“

Hin ákærðu mættu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur við þingfestingu í dag. …
Hin ákærðu mættu fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur við þingfestingu í dag. Með þeim er Sigurður G. Guðjónsson verjandi. mbl.is/Árni Sæberg

Ákæra á hendur konu á sextugsaldri, sem gefið er að sök að hafa féflett tvær heilabilaðar systur á tíræðisaldri, var þingfest í morgun. Konan og eiginmaður hennar, sem er sömuleiðis ákærður fyrir að hafa tekið við ávinn­ingi af meintum brot­um kon­unnar, geymt hann og nýtt, neituðu bæði sök við þingfestingu og höfnuðu bótakröfu. „Kæran sem þetta byggist á er uppspuni frá rótum,“ sagði Sigurður G. Guðjónsson lögmaður konunnar.

Lögráðamaður annarrar systurinnar óskaði eftir því að hún og annar lögmaður yrðu skipuð sem réttargæslumenn systranna. „Hvað eiga þeir að gera?“ spurði Sigurður lögmaður og sagði að málflutningur hefði þegar farið fram í fjölmiðlum. Gerði hann einnig alvarlegar athugasemdir við húsleit, sem gerð var á heimili hjónanna, hefði hald verið lagt á ýmsa muni og þeim ekki skilað þótt færðar hafi verið sönnur á að þeir væru í eigu eiginmannsins, en ekki systranna. 

Vísaði lögráðamaðurinn í 43. grein laga um sakamál og sagði þörf á réttargæslumönnum vegna bótakröfu sem gerð er í málinu og þeirrar staðreyndar að systurnar hafa báðar verið sviptar fjár- og sjálfræði.

Ákæran á hendur konunni er í 11 köflum, en henni er gefið að sök að hafa misnotað aðstöðu sína til að hafa fé af konunum. Ann­ars veg­ar er ákærðu gefið að sök að hafa í 2.166 til­vik­um dregið sam­tals 23.327.502 krón­ur af banka­reikn­ing­um yngri syst­ur­inn­ar og ráðstafað þannig fjár­mun­um henn­ar heim­ild­ar­laust bæði í eig­in þágu og fjöl­skyldu sinn­ar. Í kær­unni kem­ur fram að ákærða hafi til að mynda notað fjár­muni syst­ur­inn­ar til að greiða fyr­ir leigu­bílaþjón­ustu, fatnað í Hugo Boss, máltíð í Lux­em­borg og fleira. 

Hins veg­ar er ákærðu gefið að sök að hafa dregið sér í 34 til­vik­um sam­tals 52.047.338 krón­ur af banka­reikn­ingi yngri syst­ur­inn­ar, ann­ars veg­ar með því að taka fjár­muni út í reiðufé og hins veg­ar með gjald­eyri­s­kaup­um og ráðstafa þeim svo heim­ild­ar­laust í eig­in þágu og fjöl­skyldu sinn­ar.

Málið er að sögn lögmanns „mjög umfangsmikið“ og óskaði hann eftir fresti fram í september til að skila greinargerð vegna anna, og sumarfrís sem hann hyggst taka sér. Féllst dómari á það og hefur aðalmeðferð verið ákveðin, miðvikudaginn 30. september klukkan 9:15.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert