„Tilburðir til þöggunar“

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins.
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins. mbl.is/Hari

Ráða má, af lestri yfirlýsingar Helgu Bjargar Ragnarsdóttur, skrifstofustjóra borgarstjóra og borgarritara, að hún viðurkenni ekki niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli þar sem áminning hennar á hendur fjármálastjóra borgarinnar var felld úr gildi.

Þetta fullyrðir Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, í yfirlýsingu sem hún birtir á Facebook.

Helga Björg rifjaði fyrr í dag upp dóminn, sem féll fyrir tveimur árum, þar sem dóm­ar­inn fór hörðum orðum um at­hæfi hennar. Benti hún á að „óvæg­in og gild­is­hlaðin orð dómar­ans“ hefðu ítrekað verið dreg­in fram í op­in­berri umræðu, á vett­vangi borgarráðs, borg­ar­stjórnar og á sam­félags­miðlum.

Helga meti því mikils það álit, sem siðaráð Dómarafélags Íslands gaf út í febrúar eftir að hafa fengið erindi frá henni. Túlkar hún álitið sem svo að erindið gefi efni til að brýna fyr­ir dómur­um að gæta virðing­ar og hófsemi gagn­vart öllum ein­stak­ling­um sem að dómsmálum komi með ein­um eða öðrum hætti.

„Eðlileg leið“ ekki farin

Í færslu sinni segist Vigdís spyrja sig hvers vegna „eðlileg leið var ekki farin innan dómskerfisins og málinu áfrýjað til æðra dómstigs. Þess í stað var dómnum unað og Reykjavíkurborg greiddi bætur auk alls málskostnaðar“.

Vigdís heldur áfram:

„Í öðru lagi má nefna að þrátt fyrir skýra niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í þessu máli þar sem áminning Helgu Bjargar Ragnarsdóttur var dæmd ólögmæt, hélt hún starfi sínu án áminningar en hins vegar var fjármálastjóri ráðhússins færður til í starfi. Eina sem ég gerði var að vitna orðrétt í dómsniðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem allir vita að eru opinber gögn og höfðu þá þegar verið birt í fjölmiðlum og fjallað um þau þar,“ skrifar Vigdís.

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur. mbl.is/​Hari

Ekki lokið af hálfu Vigdísar

„Síðan þá hef ég legið undir ásökunum og persónulegum árásum með þremur hótunarbréfum sem mér voru send í ábyrgðarpósti að kvöldi til á heimili mitt – þar sem mér var hótað að vera dregin fyrir siðanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir það eitt að hafa vitnað í dóminn,“ skrifar Vigdís.

„Þessi vinnubrögð eru tilburðir til þöggunar og til þess fallin að koma í veg fyrir ríka eftirlitsskyldu kjörinna fulltrúa. Málinu er ekki lokið af minni hálfu enda hef ég ríka lagaskyldu sem kjörinn fulltrúi.“

Færsla Vigdísar er aðeins nýjasti kaflinn í langri deilu þeirra á milli. Helga hefur áður ásakað Vig­dísi um svo gróft einelti að hún hafi hlotið heilsutjón af. Vig­dísi hafa svo borist þrjú ábyrgðarbréf heim þar sem hún er bor­in þess­um sök­um, sem hún seg­ir þó ekki geta verið sann­ar. Hefur hún gripið til þess ráðs að snúa baki í skrif­stofu­stjór­ann þegar þær sitja fundi saman.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert